Tilfinningaþrungið andrúmsloft í Iðnó

Eva Þengilsdóttir, Halla Helgadóttir, Arna Schram og Sigrún Birgisdóttir.
Eva Þengilsdóttir, Halla Helgadóttir, Arna Schram og Sigrún Birgisdóttir. Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir

Það var glatt á hjalla í Iðnó þegar Hönnunarverðlaun Íslands voru veitt. Genki Instruments hlaut Hönnunarverðlaun Íslands 2019. Viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun hlaut Omnom og heiðursverðlaunahafi Hönnunarverðlauna Íslands er Manfreð Vilhjálmsson arkitekt. 

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, nýsköpunarráðherra veitti ​Genki Instruments aðalverðlaun kvöldsins, Hönnunarverðlaun Íslands 2019, fyrir Wave-hringinn sem​ hannaður er til að auka upplifun og túlkun í tónlist. Hringurinn er framsækin tæknilausn sem eykur möguleika tónlistamanna​ til ​sköpunar á þægilegan og notendavænan hátt. Í umsögn dómnefndar segir meðal annars:

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir veitir Genki aðalverðlaun kvöldsins.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir veitir Genki aðalverðlaun kvöldsins. Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir

„Genki Instruments er framsækið og hönnunardrifið tónlistartæknifyrirtæki þar sem hönnun, tækni, ​verkfræði, og tónlist renna saman í eitt. Wave er einstakt dæmi um framsækna hugmynd frumkvöðlafyrirtækis þar sem rannsókn, þróun og prófanir í gegnum allt hönnunarferlið skilar algerlega nýrri upplifun til notenda sem hefur hlotið lof víða um heim.“

Teymið á bak við Genki er skipað þeim Ólafi Bogasyni, Haraldi Þóri Hugosyni, Jóni Helga Hólmgeirssyni, Þorleifi Gunnari Gíslasyni og Daníel Grétarssyni. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, veitti ​Omnom súkkulaðigerð viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun 2019. Omnom framleiðir handgert súkkulaði, stofnuð af Kjartani Gíslasyni og Óskari Þórðarsyni árið 2013. Í umsögn dómnefndar segir meðal annars:

„Ferlið á bak við vöruþróun er spennandi en Omnom hefur frá byrjun unnið með hönnuðum í öllu framleiðsluferlinu að heildrænni vöruupplifun, hvort sem það er súkkulaðið sjálft eða með vandaðri hönnun á umbúðum og framsetningu í verslunum. Fyrst með hönnuðinum André Visage og nú með Veronicu Filippin. Slík samvinna í öllu ferlinu er skýrt dæmi um hvernig hönnun getur haft afgerandi áhrif á vaxtarsögu og velgengni fyrirtækis.“

Í fyrsta sinn voru veitt Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands sem Manfreð Vilhjálmsson arkitekt hlaut.

Í umsögn dómnefndar um Manfreð segir meðal annars:

Hönnun og byggingar Manfreðs Vilhjálmssonar eru meðal bestu dæma um góðan arkitektúr á Íslandi en verkin bera vitni um vandaða hönnun og arkitektúr þar sem efni, form og samhengi skapa eina órjúfanlega heild. Manfreð Vilhjálmsson arkitekt hefur markað djúp spor í sögu arkitektúrs á Íslandi. Einstakur starfsferill sem spannar yfir 60 ár endurspeglar áræðni í fjölbreyttum verkefnum og metnaðarfulla listræna og faglega sýn. Eftir Manfreð liggur fjöldi tímamótaverka sem bera vott um einstaka hæfni til að takast á við margvíslegar áskoranir staðhátta og uppbyggingar í ungu samfélagi.

Manfreð nam arkitektúr við Chalmers Tekniska Högskola í Gautaborg og lauk námi 1954. Eftir heimkomu 1956 var hann meðal brautryðjenda nýrra hugmynda í arkitektúr hér á landi. Í verkum Manfreðs birtast margvíslegar nýjungar í íslenskri húsagerðarlist en jafnframt sýna verk hans frá fyrstu tíð næmi á umhverfi og viðleitni við að leysa verkefni í samræmi við tíðaranda og í skýru menningarlegu samhengi.

Hönnunarverðlaun Íslands hafa verið veitt árlega frá 2014. Verðlaunin varpa ljósi á mikilvægi og gæðum íslenskrar hönnunar og arkitektúrs, enda er vægi hönnunar í menningu, samfélagi og viðskiptalífi alltaf að aukast.

Verðlaunin beina sjónum að því besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi um leið og einstaka hönnuðum eða hópum hönnuða er veitt mikilvæg viðurkenning.

Í dómnefnd verðlaunanna 2019 sátu ​Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir, formaður dómnefndar og hönnuður, Hörður Lárusson, grafískur hönnuður, Sigrún Birgisdóttir, arkitekt, Sigrún Halla Unnarsdóttir fatahönnuður, Daniel Golling, sýningastjóri sænska arkitektúrsafnsins, og Edda Björk Ragnarsdóttir frá Samtökum iðnaðarins.

Hönnunarmiðstöð Íslands stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands og Listaháskóla Íslands og með stuðningi frá Landsvirkjun og Samtökum iðnaðarins. 

Rósa Björk Þorsteinsdóttir og Áslaug Traustadóttir.
Rósa Björk Þorsteinsdóttir og Áslaug Traustadóttir. Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir
Bjarni Lúðvíksson, Guðberg Björnsson og Halla Jónsdóttir.
Bjarni Lúðvíksson, Guðberg Björnsson og Halla Jónsdóttir. Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir
Veronica Filippin og Óskar Þorvaldsson frá Omnom með verðlaunagripinn.
Veronica Filippin og Óskar Þorvaldsson frá Omnom með verðlaunagripinn. Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir
Manfreð Vilhjálmsson.
Manfreð Vilhjálmsson. Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir
Manfreð Vilhjálmsson, heiðurðsverðlaunahafi Hönnunarverðlauna Íslands.
Manfreð Vilhjálmsson, heiðurðsverðlaunahafi Hönnunarverðlauna Íslands. Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir
Sigurður Hannesson veitir Omnom viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun.
Sigurður Hannesson veitir Omnom viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun. Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir
Greipur Gíslason var fundarstjóri.
Greipur Gíslason var fundarstjóri. Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir
Hrefna Sigurðardóttir ásamt dóttur sinni.
Hrefna Sigurðardóttir ásamt dóttur sinni. Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir
Rut Káradóttir, Elísabet V. Ingvarsdóttir og Júlía Andersen.
Rut Káradóttir, Elísabet V. Ingvarsdóttir og Júlía Andersen. Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir
Albert Munos, Rafael Pinho, Erna Hreinsdóttir og Erna Einarsdóttir.
Albert Munos, Rafael Pinho, Erna Hreinsdóttir og Erna Einarsdóttir. Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir
Ólafur Bogason, Stella Björk Hilmarsdóttir, Þorleifur Gunnar Gíslason, Jón Helgi …
Ólafur Bogason, Stella Björk Hilmarsdóttir, Þorleifur Gunnar Gíslason, Jón Helgi Hólmgeirsson og Daníel Grétarsson. Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir
Edda Björk Ragnarsdóttir og Magnús Óskarsson.
Edda Björk Ragnarsdóttir og Magnús Óskarsson. Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir
Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál