Kæri Hrútur, þú gætir þurft á smá pásu að halda núna, jafnvel langri slökunarhelgi. Reyndu að fara í frí frá 5-7 júní. Plánetan þín er Mars og hún mun eiga í samtali við Júpíter þennan mánuðinn sem þýðir að heppnin verður með þér. Vertu skapandi og opin fyrir nýjungum því þú munt eiga auðvelt með að tileinka þér nýja tækni og læra eitthvað nýtt.
Þegar kemur að framanum þá er 8. júní happadagurinn þinn, hafðu augu og eyru opin fyrir spennandi verkefni eða tilboði.
Hvað ástarlífið varðar þá þarftu að vera vakandi í kringum 22. júní. Skemmtu þér, fagnaðu og vertu þú sjálf því þú munt laða að þér allt og alla á þessum tíma. Ekki þykjast vera eitthvað annað en þú ert, þú þarft hreinlega ekki á því að halda og það munt þú sjá með eigin augum þegar líður á mánuðinn. Ef þú ert í sambandi og vilt stækka við fjölskylduna þá er þetta rétti tíminn til að reyna.
Helgin 27-28 júní verður líka góð fyrir þig kæri Hrútur. Þú ættir að plana mikilvægan fund með einhverjum áhrifaríkum því pláneturnar eru með þér í liði.
Og að lokum, um mánaðarmótin júní-júlí gætir þú átt von á smá verðlaunum, vertu vakandi fyrir því og njóttu í botn.
Spá Susan Miller má lesa í heild sinni inni á AstrologyZone.com.