Kæra ljón, það er eitthvað að gerast í ástarlífinu hjá þér. Í upphafi mánaðar ættir þú að taka ákvörðun um manneskjuna sem þú hefur verið að hitta og endurskoða ástarsambandið ef þú ert í slíku. Staðsetning Úranusar verður til þess að þú færð óvæntar fréttir í upphafi mánaðar, jafnvel stórar.
Happadagurinn þinn þennan mánuðinn verður mánudagurinn 8. júní. Sólin er stjarnan þín og hún verður í beinni línu við Júpíter á þeim degi, þetta verður til þess að þú munt fá glaðning frá góðum vin eða eitthvað í líkingu við það. Þetta er rétti tíminn til að biðja um greiða.
Þú munt laða að þér allt og alla frá 5-18 júní. Þú verður miðpunktur athyglinnar og þarft ekki að hafa mikið fyrir því. Í lok júní er svo tilvalið að gera breytingar á útlitinu, þér verður hrósað í bak og fyrir. Fjárfestu svo í nýrri flík eða snyrtivöru, þetta er sko rétti tíminn.
Njóttu þess að vera til frá 11 til 18. júní. Gefðu þér góðan tíma til að vera með vinum þínum og hringdu í gamla vini sem þú hefur ekki talað við lengi. Slettu úr klaufunum og gerðu eitthvað öðruvísi, þú átt það skilið.
Vertu vakandi dagana 10, 11, 22 og 29 júní fyrir öllu sem tengist námi, viðskiptum og ferðalögum erlendis. Heppnin verður með þér á þessum tíma.
Spá Susan Miller í heild sinni má finna inni á AstrologyZone.com.