Kæri hrútur
Það verður brjálað að gera hjá þér allan júlímánuð og þú verður á þönum allan mánuðinn. Það mun ganga vel í vinnunni og mögulega færð þú tækifærið sem þú hefur beðið eftir í langan tíma (og mundu - þú átt það skilið). Reyndu bara að láta einkalífið ekki trufla þig of mikið í vinnunni. Eitthvað drama mun gera vart við sig innan fjölskyldunnar.
Ef þú hyggst endurinnrétta heimilið þá er tilvalið að skella sér í þær framkvæmdir í kringum 13. júlí. Þetta verður minn mál en þú heldur og þú munt standa þig vel í þessu öllu saman. Fjölskyldan og heimilið mun eiga hug þinn allan um miðjan mánuðinn.
Rómantíkin mun spila stórt hlutverk hjá þér þennan mánuðinn. Pláneturnar eru með þér í liði. Vinnan mun ryksuga upp frítíma þinn en góðu fréttirnar eru að hin eina sanna ást er að leita af þér (ef þú ert á lausu). Mundu bara að gefa þér smá tíma til að skemmta þér og blanda geði, sérstaklega ef þú ert á lausu. Ef þú ert í sambandi þá er þetta tíminn til að einbeita sér að makanum og leggja metnað í að gera eitthvað skemmtilegt saman.
Föstudagurinn 31. júlí verður svo þinn happadagur í félagslífinu. Breyttu út af vananum og slettu úr klaufunum. Vertu sérstaklega opin/n fyrir að hitta nýtt fólk á þessum degi.
Spá Susan Miller má lesa í heild sinni á Astrology Zone.