Kæri Tvíburi
Í upphafi mánaðar verður þú staðráðin/n í að ná tökum á fjármálunum. Gefðu þér tíma til að fara yfir skuldir, útgjöld og sparnaðarreikninga. Ef það hefur einhvern tímann verið rétti tíminn til þess að fara ofan í saumana á fjármálunum þá er það núna. Þú hefur verið að spreða svolítið á undanförnum vikum og mánuðum og munt að öllum líkindum halda áfram að eyða þar til í byrjun ágúst. En góðu fréttirnar eru þær að þú gætir fengið launahækkun um miðjan mánuðinn.
Gefðu þér tíma til að ferðast í upphafi mánaðar og mundu að það er ekki nausynlegt að fara langt. Hamingjan mun gera vart við sig og þú gætir hitt einhverja nýja og spennandi persónu. Ef þú ert í sambandi þá munu neistarnir fljúga. Þetta segir bara eitt, þú þarft að einbeita þér að makanum og þá mun verða mikil flugeldasýning.
Pláneturnar munu svo verða með þér í liði þegar kemur að ákvarðanatökum. Tækifærin eru þín, gríptu þau og þetta gæti orðið þinn uppáhalds tími á árinu.
Spá Susan Miller má lesa í heild sinni á Astrology Zone.