Hræðileg kynlífsóhöpp sem enduðu illa

Það endar ekki allt kynlíf vel.
Það endar ekki allt kynlíf vel. mbl.is/Thinkstockphotos

Það endar ekki allt kynlíf með værum svefni en sumir enda hreinlega uppi á spítala eftir óheppileg atvik í kynlífinu. Men's Health  birti brot af því besta eða öllu heldur því versta sem karlmenn á Reddit sögðust hafa lent í en í sumum tilvikum fóru þeir upp á spítala.  

Einn karlmaðurinn sagði að standpínan hafði hreinlega farið í tvennt í samförum þar sem konan sat ofan á. „Typpið á mér var bólgið og varð ljósfjólublátt og hún keyrði mig á bráðamóttöku. Þeir sögðu mér að þetta væru léttar vefjaskemmdir,“ sagði maðurinn og sagði það versta við þetta að spítalaheimsóknin fór inn á reikninginn hjá pabba hans. 

Það eru ekki bara samfarir sem geta reynst hættulegar en einn lenti í því að kærastan notaði iðnaðarsápu í stað sleipiefnis til þess að fróa honum. Morguninn eftir vaknaði hann og fór að pissa og tók þá eftir að húðin var að detta af honum. Hann segist ekki hafa farið upp á slysó en hafi vissulega lært eitthvað af atvikinu. 

Kynlíf í sturtunni er varasamt.
Kynlíf í sturtunni er varasamt. mbl.is/thinkstockphotos

Það getur verið varasamt að stunda kynlíf í sturtunni en einn maður sem datt á rassinn við að reyna það fékk heldur betur að finna fyrir því enda braut hann rófubeinið. 

Einn maður lýsti rosalegum höfuðverk sem hann fékk eftir að hafa stundað kynlíf með eiginkonu sinni. Það endaði með því að eiginkonan keyrði hann upp á spítala þar sem hún hélt að hann væri að fá heilablóðfall. Læknarnir sögðu þetta hins vegar ekki óalgengt og leyfðu honum að fara heim aftur eftir sjónin var komin í lag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál