Illa upp alin börn og miðaldra karlar með gestalæti

Ljósmynd/Samsett

Í miðjum heimsfaraldri er farið að reyna á þolrif landsmanna. Allra jákvæðasta fólk, sem sér alltaf björtu hliðarnar frekar en þær dökku, hefur þurft að gefa allt sem það á til þess að fara í gegnum töku tvö í veiruskrattanum án þess að missa lífviljann. Hvað getum við gert til þess að hressa okkur við á þessum skrýtnu tímum?

Eftir sex daga í húsbíl var ljós farið að loga …
Eftir sex daga í húsbíl var ljós farið að loga í mælaborðinu enda húsbíllinn keyrður 170.000 km og við komin með hreinræktað húsbílaógeð.

Vandamálið við mína kynslóð er að hún hefur ekki upplifað neinar heimshörmungar. Hún hefur vissulega upplifað persónuleg áföll, en það er öðruvísi þegar allir sitja í súpunni saman. Auðvitað hafði hrunið áhrif á fólk en það var öðruvísi. Það er búið að stimpla inn í hausinn á þessari kynslóð að hún eigi að vera besta útgáfan af sjálfri sér, sýna leiðtogahæfileika og slaka aldrei á. Bara keyra áfram, græða peninga og vera hamingjusöm. Það getur verið svolítið flókið þegar ytri aðstæður bjóða ekki upp á mikið flipp og fyrir suma er það alversta af öllu að þurfa að vera heima hjá sér. Ég tengi þó ekki við það.

Einhverjir bundu vonir við að sumarfríið yrði gott. Fólk myndi kynnast landinu sínu upp á nýtt og uppgötva heillandi staði. Það voru þó ekki allir sem upplifðu ferðalögin innanlands sem einhverja sælu. Það eru nefnilega allt of margir Íslendingar sem kunna sig ekki. Ég gæti til dæmis skrifað heila bók um taktleysi landa minna á ferðalögum eftir að hafa ferðast um Ísland í sumarfríinu. En ætli það sé ekki best fyrir mig að setja fókusinn á hið jákvæða í staðinn fyrir að pirra mig á miðaldra karlinum sem ákvað að hoppa ofan í Krossneslaug þannig að vatnið skvettist yfir hárið á mér og öllum konunum í lauginni. Ástæða þess að ég vildi ekki þvo á mér hárið var að það eru bara tvær sturtur þarna og ég nennti ekki að láta tíu konur í biðröð bíða eftir að ég setti í mig sjampó og hárnæringu. Nú eða pirra mig á konunni sem er svo stjórnsöm að hún æpti á kynsystur sína á veitingastað og bað hana að hlæja ekki svona hátt. Svo tók ég upp á því að leigja húsbíl sem reyndist algert þrotabú enda keyrður 170.000 km. Þegar húsbíllinn var farinn að líta út eins og hamstrabúr að innan, eftir að múslí datt úr hillu sem átti að vera lokuð, og dreifðist yfir allt gólfið komumst við að þeirri niðurstöðu að þetta væri orðið ágætt. Svo var líka farið að loga ljós í mælaborðinu sem boðar aldrei gott. Niðurstaðan var á þessum tímapunkti að við værum líklega komin með algert húsbílaógeð.

Hvernig væri að kaupa sér dress frá Emilio Pucci til …
Hvernig væri að kaupa sér dress frá Emilio Pucci til að lifa þessi leiðindi að.
Ef þú ert búin að lesa Berlínaraspirnar eftir Önnu B. …
Ef þú ert búin að lesa Berlínaraspirnar eftir Önnu B. Ragde þá skaltu lesa Dótturina.

Það var því bara frekar ljúft og gott að komast aftur heim til sín þar sem enginn öskrar á neinn af því hann hlær of hátt og enginn skvettir vatni á hárið á þér. Þú getur notið þess að bera á þig andlitsmaska, sett á þig mörg lög af húðdropum, lesið bækur í friði, eldað besta mat í heimi og látið þig dreyma um geggjuð föt á erlendum tískusíðum. Svo getur þú tekið til í fataskápnum þínum og straujað allt sem hægt er að strauja og hlustað á hljóðbók á meðan, hringt í vini, fært til húsgögn, málað einn vegg eða tvo og skipulagt næsta alþjóðlega frí þar sem miðaldra menn með gestalæti, illa upp alin börn og vesen verður ekki með í för!

Í haustlínu Chanel má finna doppóttar sokkabuxur. Þú getur keypt …
Í haustlínu Chanel má finna doppóttar sokkabuxur. Þú getur keypt slíkar sokkabuxur í Kringlunni ef þú þarft nauðsynlega að hressa þig við.
Hvern dreymir ekki um svona dress frá Emilo Pucci.
Hvern dreymir ekki um svona dress frá Emilo Pucci.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál