Leikkonan Mila Kunis greindi frá því í viðtali við spjallþáttastjórann Conan O‘Brian að hún og eiginmaður hennar, Ashton Kutcher, hefðu ekki séð þörf á að spreða í fokdýra giftingarhringa.
Í staðinn pöntuðu skötuhjúin sér hringa af netversluninni Etsy, sem kostuðu samtals 190 Bandaríkjadali, sem samsvarar tæpum 23.000 íslenskum krónum.
„Maðurinn minn gaf mér fallegan trúlofunarhring. Alveg gullfallegan. En giftingarhringana sjálfa ákváðum við að panta bara af Etsy.“
Kunis hafði verið að leita að hring úr hvítagulli, en sagði að þeir hefðu allir verið mjög dýrir.
„Þannig að ég fór á Etsy og sá þennan á 90 dollara (10.800 krónur) og keypti hann strax. Hringurinn hans Ashtons kostaði 100 dollara (12.000 krónur), þannig að hann er aðeins dýrari,“ bætti leikkonan við að lokum.
Frétt People