Hera Björk orðin löggiltur fasteignasali

Hera Björk Þórhallsdóttir er orðin fasteignasali.
Hera Björk Þórhallsdóttir er orðin fasteignasali.

Söngkonan Hera Björk Þórhallsdóttir er orðin löggiltur fasteignasali. Hún starfar á fasteignasölu Reykjavíkur og segist vera mjög spennt fyrir starfinu. 

Hera Björk er ævintýrakona sem lætur ekkert stoppa sig. Eftir að hafa búið um tíma í Chile ákvað hún að venda kvæði sínu í kross og læra eitthvað nýtt. Hún fór því í að læra að vera fasteignasali en hún gerði líka fleira. Hún tók heilsu sína föstum tökum og hefur sjaldan verið sterkari og flottari en akkúrat núna. 

„Ég hef verið í mjög mik­illi „inni­vinnu“ und­an­far­in ár og þá mest frá því vorið 2017. Þá lenti ég aft­ur í því að sitja berrössuð á mal­bik­inu og þá var það al­farið heilsu­tengt,“ seg­ir Hera í viðtal­i við MAN í febrúar á þessu ári: 

„Ég fyllt­ist von­leysi yfir því að ég næði ekki tök­um á sjálfri mér, bæði and­legri og lík­am­legri heilsu minni. Ég segi að þetta hafi verið gott, maður þarf að lenda á þess­um vegg, leka niður eft­ir hon­um og liggja svo­lítið grenj­andi á gólf­inu. Ég sá að ég þurfti að gera drastísk­ar breyt­ing­ar á mínu lífi og fór í þá vinnu. Ég þurfti að yf­ir­vinna for­dóma til að geta tekið næstu skref sem ég og gerði. Ég tók ábyrgð á sjálfri mér, heilsu minni, and­legri og lík­am­legri,“ sagði hún jafnframt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál