Breska fyrirsætan og sjónvarpskynnirinn Kelly Brook ratar reglulega á síður fjölmiðlanna fyrir frjálslegar myndir sem hún birtir af sér og lífstíl sem er í anda konu sem gerir út á kynþokka sinn og fegurð.
Margir muna eftir þegar Brook var valin kynþokkafyllsta kona í heimi af karlatímaritinu For Him.
Brook hefur gaman af því að vinna í garðinum, að elda og að sitja fyrir. Hún heldur úti heimasíðu þar sem hún kennir sinn eigin lífstíl. Hvernig á að elda, halda sér í formi og líta út eins og sannkölluð Brook.
Hún virðist vera frábær kokkur og lifa mjög svo áhugaverðu lífi ef marka má samfélagsmiðlana. Lífið er stutt að hennar mati og af hverju ekki að hafa það eins fallegt og hægt er? Brook á kærasta sem er ítölsk fyrirsæta og júdókappi. Hann virðist svo sannarlega gera lífið hennar fallegra ef marka má myndir af þeim saman.