Leið eins ég væri að kveðja Bjössa minn

Hafdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Laugar Spa.
Hafdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Laugar Spa. mbl.is/Golli / Kjartan Þorbergsson

Hafdís Jónsdóttir eða Dísa í World Class eins og hún er jafnan kölluð fer með lítið hlutverk í myndinni Undir halastjörnu.

„Þetta er nú bara smáhlutverk, tvær senur sem tóku ekki mikinn tíma. Það var haft samband við mig og ég spurð hvort ég væri til í að taka þetta að mér þar sem það hafði komið upp að ég væri sú týpa sem leitað væri að og ég sló til,“ segir Dísa sem leikur á móti Ingvari E. Sigurðssyni stórleikara.

„Ég er reyndar ekki búin að sjá myndina. Ég veit ekki hvort það sést í myndinni þegar ég kveð Ingvar en í þeirri senu hugsaði ég að ég væri að kveðja Bjössa minn,“ segir Dísa. 

Þegar hún segir Bjössa minn á hún við eiginmann sinn, Björn Leifsson. 

Hafdís Jónsdóttir í hlutverki sínu í myndinni.
Hafdís Jónsdóttir í hlutverki sínu í myndinni. Ljósmynd/Elma Karen
Ingvar E. Sigurðsson, Hafdís Jónsdóttir og Zlatko Buric í hlutverkum …
Ingvar E. Sigurðsson, Hafdís Jónsdóttir og Zlatko Buric í hlutverkum sínum í Undir halastjörnunni. Ljósmynd/Elma Karen
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál