Hildur Eir og Heimir skilin

Hjónin Hildur Eir Bolladóttir og Heimir Haraldsson.
Hjónin Hildur Eir Bolladóttir og Heimir Haraldsson. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Hildur Eir Bolladóttir prestur í Akureyrarkirkju og eiginmaður hennar, Heimir Haraldsson, eru skilin. Hún greinir frá því á Facebook-síðu sinni. 

„Ég hef haft það undarlega göngulag í gegnum tíðina að vera fyrst til að opinbera vanmátt minn, sama í hvaða formi hann birtist. Þó ég sé nú orðin fertug þá ætla ég mér ekki að hætta því, nú er ég hætt að drekka áfengi, borða sykur, mjólkurvörur og er svo í ofanálag skilin, hvað næst? Gerast búddamunkur í Tíbet? Við Heimir erum skilin eftir 20 ára samfylgd og 18 ára hjónaband sem gat af sér tvo undursamlega drengi og óendanlega dýrmæta vináttu sem við hjónaleysin ætlum svo sannarlega að rækta um ókomna tíð, við vorum meira að segja að velta því fyrir okkur í gær að skrifa uppistand um skilnaðarferlið og flytja á sviði þegar við erum búin að jafna okkur á nýjum veruleika,“ segir Hildur Eir á Facebook-síðu sinni. 

Hún segir að hvorki hún né Heimir séu komin með nýja maka. 

„Heimir er ekki kominn með nýja konu og ég ekki heldur þótt sagan segi að sé á hraðferð út úr skápnum enda sást ég með minnst fjórum lesbíum á opinberum vettvangi í síðustu viku, það var reyndar ótrúlega ósanngjarn hrekkur gagnvart samfélaginu, hver þeirra er eiginlega í sigtinu? En að öllu gamni slepptu þá ákváðum við Heimir í sameiningu að ég myndi skrifa þetta til að létta á mannskapnum af því að við tvö erum frekar létt á því,“ segir hún jafnframt. 

Hún játar að þetta ferli taki á. 

„Auðvitað er þetta sorg, auðvitað er þetta skipbrot, auðvitað eru margir sorgmæddir í kringum okkur, auðvitað erum við bæði kvíðin fyrir framtíðinni, skárra væri það nú, búin að vera saman hálfa ævina en það dó enginn og við eigum hvort annað að nema það gerist að Heimir eignist konu sem þoli mig ekki og ég karl sem heldur með Tottenham. Annars ætti þetta bara að ganga vegna þess að þó hvorugt okkar hafi dúxað í skóla þá erum við engir fávitar. Það er hægt að skilja og vera ekki fáviti, það er hægt að skilja og þykja óendanlega vænt um maka sinn, það er hægt að skilja og eiga enn tengsl. Að þessu sögðu þá er öllum óhætt að spyrja okkur sjálf út í þetta, hlýjar kveðjur og faðmlög eru líka vel þegin, við erum bara eins og annað fólk, drullu vanmáttug þegar lífið tekur nýja stefnu. Með fyrirfram þökk Hildur Eir og Heimir. P.s. ég er ekki komin á Tinder en ég er hins vegar komin með six pack, svo öllu sé nú haldið til haga.“

Séra Hildur Eir Bolladóttir og eiginmaður hennar, Heimir Haraldsson.
Séra Hildur Eir Bolladóttir og eiginmaður hennar, Heimir Haraldsson. mbl.is/Skapti Hallgrímsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál