Óli Stef: Kennarar eiga ekki að vera fangelsisstjórar

Ólafur Stefánsson.
Ólafur Stefánsson. mbl.is/Styrmir Kári

Ólafur Stefánsson er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar. Þjóðargersemin. Í viðtalinu fara þeir Sölvi um víðan völl og ræða meðal annars um menntakerfið. Óli Stef vinnur mikið með börnum og er á því að það sé rúmlega tímabært að fara að hrista upp í menntakerfinu:

„Hversu sturlað er það að prófa ekki eitthvað allt annað? Mín tillaga er sú að það verði gerð tilraun, þar sem börn fá bara að gera það sem þau vilja. Það er skóli. Að treysta skynjun barnanna og innsæi barnanna og snúa þessu við. Þetta yrði skemmtilegasta jobb í heimi að fá að horfa á barn gera það sem það vil. Kennararnir verða þá loksins þjónar barnanna, en ekki fangelsisstjórar.“

Hann segist ekki vilja hljóma neikvæður, en við séum meira og minna öll undir álögum aðalnámskrár og það verði að fara að hrista upp í hlutunum: 

„Það er dreki sem er ofan á þessu öllu, sem er með prinsessuna fangna og prinsessan er hamingja okkar, gleði, sköpunargáfa og sjálfstraust. Þessi dreki er „freaking“ aðalnámskrá! Við hendum henni ekki á einu bretti, en í guðanna bænum, búum til eitthvað þarna til hliðar, sem er einhvers konar andkerfi.“

Það sé komið árið 2020 og tæknin geri okkur kleift að gera alls kyns breytingar sem muni verða mjög til góðs.

„Ef við myndum hvíla aðalnámskrá í ákveðinn tíma, það myndi krefja okkur að þurfa að finna tæknilausnir til að stýra kerfinu miðað við nútímann. Við gætum búið til einhvers konar „Uber“ fyrir skóla. Ef einhver þarf leigubíl, þá er leigubílstjóri klár. Gætum við hannað einhvers konar kerfi, þar sem kennararnir væru í startholunum sem leigubílstjórar, hver með sína sérþekkingu? Allir elska að kenna það sem þeir elska..á öðrum endanum er manneskja sem brennur fyrir eitthvað innst inni og á hinum endanum er manneskja sem elskar að læra eitthvað. Ef við getum tæknilega fundið einhverja leið til að láta þessar manneskjur mætast þegar þær vilja mætast, búum það til, málið dautt!“

Í viðtalinu fara Sölvi og Óli Stef yfir bræðralagið sem myndaðist hjá silfurliðinu frá Ólympíuleikunum í Peking, það að þora að fara út fyrir boxið, elta draumana, hvernig við getum hlúð sem best að börnunum okkar og margt margt fleira.

Viðtal Sölva við Óla er hægt að hlusta á hér fyrir neðan:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál