Það hafa ef til vill margir blótað nokkrum nýjum mackintoshbólum nú um jól og áramót. Það er þó hægt að hugga sig við það að stjörnur eins og fyrirsætan Kendall Jenner fá líka sinn skerf af bólum.
Jenner mætti bein í baki í fallegum kjól Giambattista Vallis á Golden Globe-verðlaunin og lét ekki nokkrar bólur á andlitinu draga úr sér. Með hjálp förðunarfræðinga var hægt að draga úr sýnileika bólanna þó svo að ekki hefði verið hægt að fela þær alveg.
Jenner hefur háð langt stríð við bólur en hún fékk þær reglulega þegar hún var yngri og svo virðist sem hún sé ekki alveg laus við þær.
Það voru þó ekki bara bólurnar sem vöktu athygli heldurúþóttu varir Jenner eitthvað þrýstnari en vanalega og er hún talin hafa látið sprauta í þær. Ef sú er raunin er hún ekki sú fyrsta í Kardashian/Jenner-fjölskyldunni sem gerir það. Systir hennar Kylie Jenner er til dæmis þekkt fyrir varir sínar og byggir heilt förðunarveldi á þeim.