Meghan í fokdýrum kjól en Katrín í hræódýrum

Meghan Markle og Katrín hertogaynja klæddust báðar bláum kjólum.
Meghan Markle og Katrín hertogaynja klæddust báðar bláum kjólum. AFP

Meghan Markle og Katrín hertogaynja ræddu góðgerðarmál í umræðum á vegum Royal Foundation ásamt þeim Harry og Vilhjálmi. Á meðan Meghan klæddist fokdýrum kjól klæddist Meghan ódýrum óléttukjól sem hún hefur áður sést í. 

Meghan klæddist fallegum dökkbláum silkikjól frá Jason Whu sem kostar 1.415 pund eða rétt tæpar 200 þúsund íslenskar krónur eins og fram kemur á The Sun. Efni kjólsins gefur honum glæsilegt yfirbragð og beltið setur punktinn yfir i-ið. 

Katrín hertogaynja passaði að skyggja ekki á verðandi svilkonu sína og klæddist gömlum óléttukjól frá Séraphine en merkið sérhæfir sig í fatnaði fyrir óléttar konur. Kostar kjóll Katrínar, sem er reyndar uppseldur, aðeins 99 pund eða tæplega 14 þúsund krónur. 

Harry og Meghan.
Harry og Meghan. AFP
Kjóll Meghan kostar 1.415 pund.
Kjóll Meghan kostar 1.415 pund. skjáskot/net-a-porter
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál