Brigitte Macron gaf Melaniu Trump ekkert eftir í klæðaburði þegar frönsku forsetahjónin heimsóttu þau bandarísku í vikunni. Frönsk tíska var í hávegum höfð og voru þær afar glæsilegar báðar tvær á hátíðlegum kvöldverði í Hvíta húsinu á þriðjudag.
Á mánudaginn tóku Trump-hjónin á móti Emmanuel og Brigitte Macron og settu þær báðar franska tísku á oddinn. Melania Klæddist kjól og slá frá Givanchy á meðan Birgitte klæddist ljósum gulleitum kjól og jakka frá Louis-Vuitton.
Þær Melania og Birgitte héldu áfram að vera sammála um fatastíl á þriðjudaginn þegar þær klæddust báðar hvítum drögtum. Melania skyggði þó nokkuð á Macron þar sem hún skartaði stórum og miklum hatti frá Hervé Pierre
Þær spöruðu þó gullmolana þar til í á þriðjudagskvöldið þegar boðið var til hátíðlegs kvöldverðar í Hvíta húsinu. Melania var flott í silfruðum hátískukjól frá Chanel á meðan Macron, forsetafrú Frakklands geislaði í sérsniðnum hvítum Louis Vuitton-kjól með gylltu munstri.