Georg prins tók virkan þátt í brúðkaupi Harry og Meghan á laugardaginn. Georg var klæddur í föt sem pössuðu við búning Harry frænda hans en klæðnaðurinn vakti mikla athygli fyrir þær sakir að Georg hefur ekki áður sést í síðbuxum.
Georg hefur hingað til bara sést í stuttbuxum en hefð er fyrir því að ungir drengir af efri stéttum í Bretlandi klæðist stuttbuxum þangað til að þeir verða átta ára. Undantekning var gerð frá þessari reglu svo Georg gæti klæðst eins buxum og faðir hans og Harry klæddust við athöfnina.
Búist er við því að Georg haldi áfram að klæðast stuttbuxum næstu þrjú árin þrátt fyrir þetta hliðarspor hans en prinsinn litli verður fimm ára í sumar.