Meghan Markle hertogaynja af Sussex var einungis gestur í brúðkaupi um helgina en kjóll hennar vakti þó meiri athygli en kjóll brúðarinnar. Meghan mætti með Harry í brúðkaup frænku hans í rándýrum kjól frá Oscar de la Renta.
Kjóllinn sem var síður hvítur kjóll með bláum blómum kostar 3.922 pund á vefversluninni Moda Operandi eða rúmlega 560 þúsund íslenskar krónur.
Á meðan mörgum finnst kjóllinn guðdómlegur var tískulögga Daily Mail ekki ánægð með fataval hertogaynjunnar. Fannst henni líkami Meghan týnast í kjólnum og þótt að Meghan liti vel út í hverju sem er þá finnst henni eins og kjóllinn mætti vera þrengri í mittið, í bjartari lit og í minni stærð. Auk þess fannst henni munstrið á kjólnum minna meira á Lauru Ashley en Oscar de la Renta.
Hatturinn sem Meghan skartaði kostaði þó mun minna en hann er frá verslunarkeðjunni Marks & Spencer eins og Daily Mail fékk staðfest og kostar hatturinn ekki nema tæp 30 pund eða tæpar 4.500 íslenskar krónur.