Skammast sín ekki fyrir magann

Candice Swanepoel var ólétt á tískusýningu Victoria's Secret í nóvember.
Candice Swanepoel var ólétt á tískusýningu Victoria's Secret í nóvember. mbl.is/AFP

Victoria Secret-fyrirsætan Candice Swanepoel eignaðist sitt annað barn í síðasta mánuði. Götuljósmyndarar mynduðu fyrirsætuna á ströndinni tæpum tveimur vikum eftir barnsburð en Swanepoel svaraði heldur betur fyrir sig á Instagram. 

„Þetta er ég 12 dögum eftir að ég átti son minn. Ef þið hafið eitthvað slæmt um það að segja... Skoðið ykkur sjálf,“ skrifaði fyrirsætan meðal annars og sagði að fólk gæti verið svo miskunnarlaust gagnvart öðru fólki. Fyrirsætan sem sýndi síðast undirföt fyrir Victoria's Secret í nóvember þá ólétt og ári eftir að hún eignaðist sitt fyrsta barn segir oft ómögulegt fyrir konur að standast þá fegurðarstaðla sem eru í gangi. 

„Ég skammast mín ekki fyrir að sýna magann á mér eftir barnsburð. Ég er reyndar stolt. Ég gekk með son minn í níu mánuði þarna inni. Ég held ég hafi rétt á því að vera með smá maga. Er það af því ég er fyrirsæta? Jæja, við erum líka venjulegt fólk svo leyfið mér að njóta þess að vera á ströndinni.“

skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál