Meghan hertogaynja sér oftast um að mála sig sjálf. Þessu greindi förðunarfræðingurinn Daniel Martin frá í viðtali við People í september. Martin sá um að farða Meghan á brúðkaupsdaginn hennar og er góður vinur hennar svo hann veit hvað hún vill og hvað hún vill ekki.
Meghan skartar oftast náttúrulegri förðun og sést því yfirleitt með bleika og ljósa varaliti. Í rauninni er rauður varalitur snyrtivara sem Martin segir Meghan ekki nota.
„Eina skiptið sem hún var með rauðar varir leið henni ekki vel með hann. Henni finnst gaman að tala og er ekki smámunasöm manneskja svo hún vill ekki þurfa hafa áhyggjur af neinu,“ sagði Martin um það þegar Meghan prófaði rauðan varalit.