Priyanka Chopra elskar Crocs

Priyanka Chopra lætur gott af sér leiða í samstarfi við …
Priyanka Chopra lætur gott af sér leiða í samstarfi við Crocs. AFP

Leikkonan Priyanka Chopra elskar Crocs-skó og hefur gert um árabil. Chopra opinberaði ást sína á skóbúnaðinum í viðtali við Elle

Crocs eru skórnir sem allir elska að hata. Á síðustu árum hafa skórnir þó unnið sig upp í vinsældum eftir að vinsælir hönnuðir eins og Christopher Kane og Balenciaga fóru að framleiða sína eigin lúxusútgáfu af skónum.

Chopra er sendiherra hjá UNICEF og hennar nýjustu herferð fyrir UNICEF hefur hún ásamt Crocs sent 50 þúsund pör af Crocs-skóm til barna í neyð í Belize. 

„Ég verð að segja. Ég hef verið aðdáandi Crocs-skónna mjög, mjög lengi. Ég man eftir því þegar ég var í ferð með UNICEF einu sinni og ég sá fjöldann allan af börnum í engum skóm eða í gatslitnum skóm. Og ég man eftir að hafa sagt að ég gengi í Crocs reglulega og að Crocs væru miklu betri skór sem myndu endast vel og vera þægilegir fyrir börnin,“ sagði Chopra. 

Chopra lét því af því verða að senda börnunum skó og urðu Crocs fyrir valinu. Sem fyrr segir gengur hún oft í Crocs-skóm og segist alveg geta hugsað sér að ganga á rauða dreglinum í pari.

Crocs-skórnir koma eflaust börnunum í Belize að góðum notum.
Crocs-skórnir koma eflaust börnunum í Belize að góðum notum. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál