Steldu stílnum: Joe Exotic

Hver vill ekki stela stílnum af Joe Exotic?
Hver vill ekki stela stílnum af Joe Exotic? AFP

Það er um fátt annað rætt en þættina Tiger King þessa dagana. Aðalumfjöllunarefni þessara einstaklega áhugaverðu heimildarþátta er fyrrverandi dýragarðsvörðurinn Joseph Allen Maldonado-Passage, betur þekktur sem Joe Exotic.

Það má með sanni segja að Joe sé einstaklega litríkur karakter með einstakan smekk á fötum og fylgihlutum. Það fyrsta sem þú þarf til að stela stíl Joes er að klippa á þig „mullet“, það ætti að vera auðvelt í samkomubanni og værir þú að fara algjörlega eftir fyrirmælum Víðis Reynissonar. Það er ekki verra ef þú aflitar svo hárið, en það er þó ekki nauðsynlegt.

Næsta skref er að gera gat í augabrúnina og bæta við nokkrum í eyrun. Það getur þó reynst erfitt í samkomubanni. Tilraunastarfsemi með nál og epli gæti farið illa og ekki viljum við leggja meira á heilbrigðiskerfið á þessum fordæmalausu tímum.

Joe Exotic er hrifinn af pallíettum.
Joe Exotic er hrifinn af pallíettum. skjáskot
Kúrekaskyrta í anda Joe.
Kúrekaskyrta í anda Joe. skjáskot/Zara
Tígrisdýr er ekki nauðsynlegt til að fullkomna lúkkið, en gerir …
Tígrisdýr er ekki nauðsynlegt til að fullkomna lúkkið, en gerir gæfumuninn,

Joe klæðist iðulega litríkum fötum. Þá eru litríkar pallíettuskyrtur áberandi í fatastíl hans og parar hann þær saman við klassískar gallabuxur. Svartar, bláar eða hvítar ættu að duga. Kúrekastígvél og -jakki setja svo punktinn yfir i-ið. Joe er líka einstaklega hrifinn af hverskyns flíkum með dýramynstri.

Leikarinn og tónlistarmaðurinn Jared Leto klæddi sig einmitt upp í anda Joe Exotic á dögunum með frábærri útkomu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál