Hönnun er ekki alltaf falleg eins og kemur bersýnilega í ljós á Instagram-síðunni Ugly Design eða Ljót hönnun. Stjórnendur síðunnar hafa tekið saman hluti, hús, föt og fylgihluti sem þykja ljótir.
Hvað er fallegt og hvað ekki er smekksatriði. Það eru þó líklega fáir sem myndu vilja ganga með sígarettuhárkollu, koma fyrir hægindastól í stofunni sem lítur út eins og hælaskór eða hlýða á predikun frá presti úr ógnarstórum kuðungi.
Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir af ljótri hönnun og hafa birst á síðunni.