„Ég byrjaði frá algjörum núllpunkti“

Kári Eyvindur Hannesson sýndi fatalínu á tískusýningu útskriftanema í byrjun …
Kári Eyvindur Hannesson sýndi fatalínu á tískusýningu útskriftanema í byrjun maí. Ljósmynd/Leifur Wilberg Orrason

Kári Eyvindur Hannesson útskrifast sem fatahönnuður frá Listaháskóla Íslands í næsta mánuði. Hönnun hefur alltaf heillað Kára og kom það ekki á óvart að hann skyldi enda í hönnun af einhverju tagi.

„Þegar ég útskrifaðist úr menntaskóla var ég með ófá áhugamál og því var úr mörgu að velja. Áhuginn fyrir fatahönnun var þá búinn að þróast talsvert og ég vissi að ég myndi vilja fara í einhvers konar hönnunargrein. Sú grein sem var í fyrsta sæti hjá mér var fatahönnun,“ segir Kári. 

„Ég var ekki með neinar hugmyndir um hvernig skólinn myndi ganga fyrir sig. Ég hafði ekki snert saumavél frá því í grunnskóla, þannig ég var á algjöru grunnstigi þegar kom að tækni og þekkingu á því hvernig föt eru gerð frá grunni,“ segir Kári sem lærði eitthvað nýtt á hverjum degi í náminu.

Kári stendur á tímamótum nú þegar hann er að útskrifast. Hann játar að það sé að vissu leyti skrítin tilfinning en á sama tíma eru spennandi tímar framundar og margar dyr sem opnast. 

Kári Eyvindur Hannesson.
Kári Eyvindur Hannesson. Ljósmynd/Aðsend

Hlutleysið heillar

Kári sýndi útskriftarlínu sína ásamt samnemendum á tískusýningu í Hafnarþorpinu í byrjun maí. Kári vann sína línu út frá tíma, aldri og fegurðinni sem því fylgir. 

Kári segir spennandi að vinna á mörkum kven- og karlfatnaðar. „Eins og sást á sýningunni, þá vildi ég hafa bæði karla og konur. Karlmannsfatnaður er ákveðið mengi sem er hægt og rólega að víkka og bilið á milli karl- og kvenkynsfatnaðar er sífellt að minnka. Ég er ekki viss um hvar ég ætla að staðsetja mig en í augnablikinu er hlutleysið mest heillandi. Hver og einn líkami á skilið þann fatnað sem einstaklingurinn hrífst af og vill klæðast til frambúðar. Mitt starf er að verða að þeirra óskum.“

Útskriftalína Kára.
Útskriftalína Kára. Ljósmynd/Leifur Wilberg Orrason

Vel gekk að vinna línuna en í náminu kom Kári sér upp öguðum vinnubrögðum. 

„Stærsta hindrunin er yfirleitt tíminn. Maður vill komast frá punkti A til punkts B á vandvirkan máta en svo koma upp spurningar um hvernig maður getur gert einhvern tiltekinn hlut. Þá þarf maður einungis að gefa sér tíma til að komast að svörunum. Í gegnum skólann þróaði ég með mér ákaflega strangan vinnuaga og hæfileikann til að spá fyrir um flestar þær hindranir sem líklegt er að rekast á í öllu ferlinu. Þegar hindranir koma upp, þarf maður bara að læra að aðlagast þeirri stöðu og gefa sér svigrúm til þess að finna lausnir á vandanum.“

Kári sýndi útskriftalínu sína í byrjun maí.
Kári sýndi útskriftalínu sína í byrjun maí. Ljósmynd/Leifur Wilberg Orrason

Ætlar að hanna aðra línu í sumar

Hvað heillar þig í tísku í dag?

„Fatamerki og hönnuðir sem byggja hönnun sína á einlægum og sönnum forsendum  og falla ekki fyrir peningnum í fjöldaframleiðslunni. Þau sem eru með raunveruleg markmið um sjálfbærni og sýna fram á óaðfinnanlegt handverk þegar kemur að hönnun og saumaskap til að fatnaðurinn endist þér sem lengst.“

Myndir þú klæðast fötunum sem þú hannar og eru þau endurspeglun á þínum stíl? 

„Ég hef ekki verið að hanna föt í þeim tilgangi að klæðast þeim sjálfur. En núna þegar ég þarf ekki að svara til skólans og hef tíma til að einbeita mér ófyrirgefanlega mikið að því sem ég heillast mest af, þegar kemur að hönnun fatnaðar og mínum eigin stíl, gæti það breyst. Ég byrjaði á algjörum núllpunkti og hef bætt mig gríðarlega en það er ákveðið hæfnisstig sem ég vil komast á til að klæðast því og selja það sem ég hanna.“

Ertu spenntur fyrir því að vinna í íslensku tískuumhverfi eða langar þig að fara utan? 

„Hverjar og einar dyr sem hafa opnast eftir útskriftina bjóða upp á mismunandi möguleika til að öðlast meiri þekkingu, tækni og innsýn inn í heim fatahönnunar. Ég held að ég vilji hafa höfuðstöðvar á Íslandi. Til að komast þangað mun ég e.t.v. þurfa að taka þátt í verkefnum sem leiða mig út fyrir landsteinana, einu sinni eða oftar. Það eru engar réttar eða rangar dyr til að ganga í gegnum, þannig að ég er opinn fyrir öllu. Í sumar er ég að fara hanna aðra fatalínu og rannsaka jurtalitun á vegum Kópavogsbæjar. Áhugasamir geta fylgst með því ferli á Instagram á @karieyvindur.

Arna Inga Arnórsdóttir.
Arna Inga Arnórsdóttir. Ljósmynd/Leifur Wilberg Orrason

Fjölbreytt og spennandi á útskriftarsýningunni

Níu nemendur voru í útskriftarhóp fatahönnunarnema að þessu sinni. Hér fyrir neðan má sjá útskriftarlínur þeirra Örnu Ingu Arnórsdóttur, Atla Geirs Alfreðssonar, Auðar Ýrar Gunnarsdóttur, Eydísar Elfu Örnólfsdóttur, Fawencha Rosa, Halldórs Karlssonar, Teklu Sólar Ingibjartsdóttur og Muna Jakobssonar. 

Arna Inga Arnórsdóttir.
Arna Inga Arnórsdóttir. Ljósmynd/Leifur Wilberg Orrason
Arna Inga Arnórsdóttir.
Arna Inga Arnórsdóttir. Ljósmynd/Leifur Wilberg Orrason
Atli Geir Alfreðsson.
Atli Geir Alfreðsson. Ljósmynd/Leifur Wilberg Orrason
Atli Geir Alfreðsson.
Atli Geir Alfreðsson. Ljósmynd/Leifur Wilberg Orrason
Atli Geir Alfreðsson.
Atli Geir Alfreðsson. Ljósmynd/Leifur Wilberg Orrason
Auður Ýr Gunnarsdóttir.
Auður Ýr Gunnarsdóttir. Ljósmynd/Leifur Wilberg Orrason
Auður Ýr Gunnarsdóttir.
Auður Ýr Gunnarsdóttir. Ljósmynd/Leifur Wilberg Orrason
Auður Ýr Gunnarsdóttir.
Auður Ýr Gunnarsdóttir. Ljósmynd/Leifur Wilberg Orrason
Eydís Elfa Örnólfsdóttir.
Eydís Elfa Örnólfsdóttir. Ljósmynd/Leifur Wilberg Orrason
Eydís Elfa Örnólfsdóttir.
Eydís Elfa Örnólfsdóttir. Ljósmynd/Leifur Wilberg Orrason
Halldór Karlsson.
Halldór Karlsson. Ljósmynd/Leifur Wilberg Orrason
Eydís Elfa Örnólfsdóttir.
Eydís Elfa Örnólfsdóttir. Ljósmynd/Leifur Wilberg Orrason
Fawencha Rosa.
Fawencha Rosa. Ljósmynd/Leifur Wilberg Orrason
Fawencha Rosa.
Fawencha Rosa. Ljósmynd/Leifur Wilberg Orrason
Fawencha Rosa.
Fawencha Rosa. Ljósmynd/Leifur Wilberg Orrason
Halldór Karlsson.
Halldór Karlsson. Ljósmynd/Leifur Wilberg Orrason
Halldór Karlsson.
Halldór Karlsson. Ljósmynd/Leifur Wilberg Orrason
Muni Jakobsson.
Muni Jakobsson. Ljósmynd/Leifur Wilberg Orrason
Muni Jakobsson.
Muni Jakobsson. Ljósmynd/Leifur Wilberg Orrason
Tekla Sól Ingibjartsdóttir.
Tekla Sól Ingibjartsdóttir. Ljósmynd/Leifur Wilberg Orrason
Tekla Sól Ingibjartsdóttir.
Tekla Sól Ingibjartsdóttir. Ljósmynd/Leifur Wilberg Orrason
Tekla Sól Ingibjartsdóttir.
Tekla Sól Ingibjartsdóttir. Ljósmynd/Leifur Wilberg Orrason
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál