Hin árlega MTV Video Music verðlaunahátíð fór fram í New Jersey í Bandaríkjunum síðastliðna nótt. Niður rauða dregil hátíðarinnar gengu margar af skærustu stjörnum heims í tónlistarbransanum í hönnun frá heitustu tískuhúsum heims.
MTV Video Music verðlaunahátíðin er frábrugðin öðrum stórum hátíðum á borð við Óskarsverðlaunahátíðina eða kvikmyndahátíðina í Cannes að því leytinu að stjörnurnar eru hvattar til að fara meira út fyrir kassann og prufa sig áfram með djarfari og óhefðbundnari dress á rauða dreglinum.
Það voru því mörg áhugaverð dress á rauða dreglinum í ár, en Smartland tók saman 10 best klæddu stjörnurnar á hátíðinni sem voru hver annarri glæsilegri.