Kuldinn hefur látið finna rækilega fyrir sér síðustu vikur. Á mánudaginn birti þó yfir landanum þegar mikil gleðitíðindi bárust um hlýindi og tveggja stafa hitatölur um næstu helgi. Nú þykir þó ólíklegt að sú spá rætist og því aðeins tvennt í stöðunni – annað hvort að flýja á heitari slóðir eins og Salka Sól Eyfeld og Eva Laufey Kjaran gerðu, eða græja þig upp fyrir kuldann.
Á óskalista vikunnar má því finna tíu hluti sem gleðja augað og hlýja kroppnum – þú þarft nefnilega ekki að fórna lúkkinu né góða skapinu þó það sé kalt!
Þessi geggjaða úlpa er frá norska merkinu Holzweiler sem hefur öðlast miklar vinsældir síðustu ár. Það er óhætt að segja að tíska og notagildi mætist í þessari flík, en hún er ekki bara flott heldur líka hlý og í góðri sídd – akkúrat það sem við þurfum fyrir íslenska vetrarveðrið.
Góður varasalvi er ómissandi í kuldanum og frostinu sem hefur einkennt síðustu vikur. Þessi varasalvi frá íslenska merkinu BioEffect er splunkunýr, en hann kemur í veg fyrir þurrar varir og heldur þeim silkimjúkum og fallegum. Varasalvinn inniheldur nærandi innihaldsefni eins og jojobaolíu, avókadóolíu og sólbrómafrævax, en líka hýalúrónsýru sem veitir djúpan raka.
Ef það er eitt sem allir Íslendingar ættu að eiga í fataskápnum þá eru það flottar vindbuxur, enda þekkjum við vindinn og rokið aðeins betur en margar aðrar þjóðir. Þessar buxur eru frá Aim'n og eru í fáránlega flottu sniði.
Að undanförnu hafa vörur frá kanadíska útivistarmerkinu Arc'tyrex verið að gera allt vitlaust í tískuheiminum. Vörurnar þeirra eru stílhreinar og tímalausar, en það besta er að hægt er að nýta þær bæði hversdagslega og í útivist. Þessi jakki er fullkominn fyrir íslenskt veðurfar, en hann er með góðri öndun og veðurvörn!
Íslenska merkið Reykjavík Roses, sem stofnað var árið 2016, er með tryllta húfulínu um þessar mundir sem ætti að falla vel í kramið hjá tískuunnendum.
Sea Butter-líkamskremið frá L'Occitane er sannkallaður draumur fyrir húðina í kuldanum, en formúlan hefur vakið mikla lukku enda afar nærandi og þægileg í notkun. Nú síðast sló handáburður úr sömu línu í gegn á samfélagsmiðlinum TikTok.
Þessi jakki er ekki bara flottur heldur líka praktískur. Hann er úr „faux“ leðri og feld, en hægt er að snúa honum á röngunni fyrir allt öðruvísi lúkk. Þú færð því í rauninni tvo jakka í einum – hljómar ekki illa!
Moon Boots æðið virðist ekki vera á niðurleið, enda geggjaðir skór sem grípa klárlega augað. Svo skemmir ekki fyrir hve þægilegir þeir eru, en fólk líkir því að ganga í Moon Boots oft við að ganga á skýjum.
Það þurfa allir að eiga góða peysu í fataskápnum sem er í senn flott, mjúk og notaleg. Þessi fallega peysa uppfyllir allar þær kröfur!
Þessi dásamlegi ilmur frá Giorgio Armani er ávaxtakenndur blómailmur sem fer með lyktarskynið í töfrandi ferðalag.