Ásmundur: Réttur stígandi hjá okkur

„Það er stígandi í þessu hjá okkur,“ sagði Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fylkis, glaðbeittur eftir 4:1 sigurs liðsins á Þór í 17. umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu í kvöld.

„Við erum búnir að finna fyrir þessu lengi og nú er bara að halda áfram á þessari braut og halda áfram að hala inn stig.

Það er gott að fá Albert Brynjar, hann getur ekki hætt að skora í Árbænum og eins hefur það góð áhrif á liðið að menn eru að koma úr smá meiðslum. Við vorum klárlega betra liðið í dag en gerðum okkur þetta óþarflega erfitt með því að slaka á undir lok fyrri hálfleiks,“ sagði ásmundur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert