Kristrún barnshafandi og ekki með

Kristrún Kristjánsdóttir í leik gegn FH síðasta sumar.
Kristrún Kristjánsdóttir í leik gegn FH síðasta sumar. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Kristrún Kristjánsdóttir mun lítið sem ekkert leika með liði Stjörnunnar í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu næsta sumar en hún er barnshafandi.

Kristrún hefur leikið rúmlega 190 leiki með Stjörnunni og samtals 199 leiki í efstu deild með Stjörnunni og Fjölni, en í tilkynningu frá félaginu segir að hún muni lítið koma við sögu næsta sumar vegna þessa. Hún spilaði 17 leiki í Pepsi-deildinni í fyrra og er 12. leikjahæsti leikmaður efstu deildar kvenna frá upphafi.

Kristrún er uppalin í Fjölni en gekk í raðir Stjörnunnar árið 2009.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert