Aganefnd KSÍ fundaði í gær og voru tveir úr efstu deild karla, Pepsí-deildinni, úrskurðaðir í leikbann.
Annars vegar var það Finnur Orri Margeirsson hjá KR sem safnað hefur fjórum gulum spjöldum í fyrstu sex umferðunum. Þá fékk Milan Stefán Jankovic, aðstoðarþjálfari Grindavíkur, einnig leikbann en honum var vísað af hliðarlínunni í leik Stjörnunnar og Grindavíkur.