„Öll liðin eru góð, HK/Víkingur líka“

Fatma Kara í baráttunni við Shameeka Fishley á Víkingsvellinum í …
Fatma Kara í baráttunni við Shameeka Fishley á Víkingsvellinum í kvöld. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Þetta var erfiður leikur en stigin þrjú voru okkur gríðarlega mikilvæg,“ sagði Fatma Kara, leikmaður HK/Víkings, eftir 1:0-sigur á ÍBV í 8. umferð Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu í kvöld.

Nýliðarnir unnu í fyrstu umferðinni en þurftu svo að bíða þar til í kvöld eftir næsta sigri sem kom þökk sé frábæru sigurmarki Köru.

„Við áttum erfiðan kafla eftir fyrsta leikinn en við höfum verið að bæta okkur og vorum góðar í kvöld. Íslenska deildin er erfið en mér líkar vel við hana og við horfum fram á veginn. Öll liðin í deildinni eru góð en HK/Víkingur er það líka.“

„Ég sagði við sjálfa mig fyrir leik að ég ætlaði að skora í dag og það tókst. Þetta var frábær tilfinning!“ sagði hún að endingu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert