Breiðablik bar sigur úr býtum í Barcelona

4. flokkur kvenna hjá Breiðabliki vann m.a. Barcelona.
4. flokkur kvenna hjá Breiðabliki vann m.a. Barcelona. Ljósmynd/Breiðablik

Fjórði flokkur Breiðabliks í kvennaflokki í fótbolta bar sigur úr býtum á Barcelona Summer Cup-mótinu sem haldið er ár hvert í aldursflokknum í borginni Barcelona á Spáni.

Í mótslok var Þórhildur Elín Ásgeirsdóttir valin besti leikmaður mótsins af mótshöldurum. Eyrún Vala Harðardóttir var svo verðlaunuð fyrir að vera markahæsti leikmaður mótsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert