Stefán skaut ÍA á toppinn

Stefán Teitur Þórðarsson fagnar öðru marki sínu gegn Fram á …
Stefán Teitur Þórðarsson fagnar öðru marki sínu gegn Fram á Akranesi í kvöld. Ljósmynd/Skagafréttir.is

ÍA tók á móti Fram í 16. umferð Inkasso-deildar karla í knattspyrnu í dag en leiknum lauk með 2:0 sigri heimamanna. Staðan að loknum fyrri hálfleik var markalaus en á 59. mínútu kom Stefán Teitur Þórðarson heimamönnum yfir eftir laglegan undirbúning Steinars Þorsteinssonar.

Stefán Teitur var svo aftur á ferðinni fjórum mínútum síðar þegar Albert Hafsteinsson sendi hann í gegn og Stefán kláraði færið sitt vel. Skagamenn eru í efsta sæti deildarinnar með 36 stig og hafa nú eins stigs forskot á HK og þriggja stiga forskot á Þórsara sem eru í þriðja sætinu.

Fram er í sjötta sæti deildarinnar með 20 stig eftir fyrstu 16. umferðirnar en liðið hefur nú ekki unnið í fjórum leikjum í röð.

ÍA 2:0 Fram opna loka
90. mín. Tvær mínútur í uppbótartíma.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert