ÍBV sigraði HK/Víking með fimm mörkum gegn einu þegar liðin áttust við í 17. umferð Pepsi-deildar kvenna í dag. Staðan var 4:0 í hálfleik.
Cloé Lacasse lék á als oddi í dag og gerði fjögur af mörkum Eyjakvenna, Birgitta Sól Vilbergsdóttir gerði hitt markið. Karólína Jack skoraði eina mark gestanna.
ÍBV gulltryggði sér fimmta sætið í deildinni með sigrinum og er með 25 stig fyrir lokaumferðina. HK/Víkingur er áfram í 7. sæti með 17 stig en liðið var sloppið úr fallhættu fyrir leikinn í dag.
ÍBV | 5:1 | HK/Víkingur | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
90. mín. Leik lokið +3. Öruggur sigur ÍBV. | ||||
Augnablik — sæki gögn... |