Heiðar Ægisson hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild Stjörnunnar til næstu þriggja ára. Þetta kemur fram á Twitter-síðu félagsins en samningur hans átti að renna út í október.
Heiðar er uppalinn í Garðabænum en hann spilaði ellefu leiki með Stjörnunni í sumar áður en hann hélt út til Bandaríkjanna í háskólanám. Hann er 23 ára gamall og á að baki 111 leiki í meistaraflokki fyrir Stjörnuna þar sem hann hefur skorað 4 mörk.
Stjarnan hefur samið við Heiðar Ægisson til næstu þriggja ára. Heiðar hefur verið Stjörnunni geysilega mikilvægur á undanförnum árum. Það er stjórn knattspyrnudeildar mikið fagnaðarefni að Heiðar skuli framlengja við félagið enda fer þar uppalinn Stjörnumaður með blátt hjarta! pic.twitter.com/am751olt1M
— Stjarnan FC (@FCStjarnan) September 20, 2018