Martin gerir tveggja ára samning við Selfoss

Dean Martin verður áfram á Selfossi.
Dean Martin verður áfram á Selfossi. Ljósmynd/Guðmundur Karl

Dean Martin skrifaði í kvöld undir nýjan tveggja ára samning við knattspyrnudeild Selfoss um þjálfun karlaliðs félagsins.

Martin tók tímabundið við liðinu í lok júlí síðastliðins og er mikil ánægja með störf hans innan félagsins þótt hlutskipti karlaliðsins hafi verið að falla niður í 2. deild.

„Það voru allir sammála um það í stjórninni að Dean væri fyrsti kostur í starf þjálfara karlaliðsins og við erum mjög ánægð með að um hafi samist. Hann hefur unnið mjög faglega fyrir okkur í sumar en auk þess að þjálfa meistaraflokk mun hann koma inn að styrktarþjálfun fyrir fleiri flokka,“ segir Jón Steindór Sveinsson, formaður knattspyrnudeildar Selfoss.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert