Dýrkeypt kjaftbrúk

Ragnar Sigurðsson fær gult spjald hjá sænska dómaranum Andreas Ekberg.
Ragnar Sigurðsson fær gult spjald hjá sænska dómaranum Andreas Ekberg. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ragnar Sigurðsson verður í leikbanni þegar Ísland mætir Belgíu í síðasta leik sínum í Þjóðadeildinni í knattspyrnu í næsta mánuði.

Ragnar fékk gult spjald eftir kröftug mótmæli við dómara í uppbótartíma leiksins við Sviss í
kvöld. Hann hefur þar með fengið tvær áminningar í keppninni, sem þýðir eins leiks bann.

Ragnar fékk fyrri áminningu sína í 6:0-tapinu gegn Sviss ytra í fyrstu umferð keppninnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert