Jón Guðni Fjóluson verður ekki með íslenska karlalandsliðinu í knattspyrnu í vináttuleiknum gegn Katar í kvöld.
Frá þessu er greint á vefsíðunni fótbolti.net en Jón Guðni er farinn til Rússlands vegna veikinda í fjölskyldu hans. Hann leikur með rússneska liðinu Krasnodar.
Jón Guðni lék allan tímann í leiknum á móti Belgum í Þjóðdeild UEFA í Brussel í síðustu viku og átti góðan leik en íslenska liðið lék með þrjá miðverði í leiknum og mun gera það aftur í kvöld.