Eyjamenn hafa gert eins árs samning við Kamerúnmanninn Evariste Ngolok og mun hann leika með ÍBV í Pepsi-deildinni í knattspyrnu á næstu leiktíð en þetta kemur fram á vef ÍBV.
Ngolok er 30 ára gamall miðjumaður sem lék á síðasta tímabili með liði Aris Limassol á Kýpur. Hann lék 17 deildarleiki með liðinu og skoraði í þeim eitt mark. Þar áður var hann í herbúðum belgíska liðsins Lokeren en hann lék með liðinu frá 2014-17 þar sem hann skoraði 7 mörk í 29 deildarleikjum.
Þá hefur hann leikið með belgísku liðunum Anderlecht, Union SG, Dender, Westerlo og Leuven.