Powell farin frá Selfossi

Darian Powell
Darian Powell Ljósmynd/Selfoss

Bandaríski framherjinn Darian Powell er farin frá Selfossi eftir að félagið ákvað að rifta samningi sínum við leikmanninn. Powell kom til félagsins fyrir tímabilið en skoraði aðeins eitt mark í fimm leikjum hér á landi. 

„Við eigum okkar heimastelpur sem að munu fá sénsinn og verða að stíga upp," sagði Alfreð Elías Jóhannsson í samtali við fotbolti.net í dag. „Þetta var bara ekki að falla með henni. Við ætlum ekki að bíða eftir því að hún hrökkvi í gang, bætti hann við. 

Selfoss er í sjötta sæti Pepsi Max-deildar kvenna með sex stig eftir sex leiki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert