Ég hef alltaf verið trú mínu félagi

Tinna Óðinsdóttir
Tinna Óðinsdóttir mbl.is/Kristinn Magnússon

„Ég hef alltaf verið trú mínu félagi og með svart/rautt/hvítt hjarta,“ sagði Tinna Óðinsdóttir, sem lék sinn 255 leik fyrir HK/Víking þegar Keflavík kom í heimsókn í kvöld en niðurstaðan var 1:1 jafntefli. 

„Ég átti barn í millitíðinni en þá komust stelpurnar upp í efstu deild, það var freistandi og þá var ekki hægt að leggja skóna á hilluna en mér finnst geggjað að spila í efstu deild.“

Tinna var sátt við stigið.  „Okkur langaði í öll stigin en bæði lið áttu möguleika á að ná í þrjú stig, sárt að fá bara eitt en ég tek það því þetta er bara stigasöfnun.  Við lögðum fyrst og fremst upp með að spila að okkar hætti en vitum að Keflavík er með nokkra góða leikmenn sem geta skorað svo við lögðu líka áherslu á að loka á þá.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert