Kvennalið KR í knattspyrnu gaf í gær út stuðningsmannalag og myndband fyrir bikarúrslitaleikinn gegn Selfossi sem leikinn er á Laugardalsvelli á morgun.
„Lagið er baráttulag og þótt það fjalli um KR þá er einnig hægt að sjá víðari merkingu í því fyrir kvennaboltann almennt hér á landi. Þetta er því liður í að auka þá athygli sem íslenski kvennaboltinn er að fá á Íslandi og beina kastljósinu að þeim miklu gæðum sem eru þar til staðar,“ segja KR-ingar um lagið og segja það gert í samstarfi við Steinunni Jónsdóttur og Röggu Hólm úr Reykjavíkurdætrum.
Hér að neðan má sjá og heyra tónlistarmyndband KR-inga, en bikarúrslitaleikurinn hefst klukkan 17 á morgun.