Rafn Markús sagði upp hjá Njarðvík

Rafn Markús Vilbergsson og Snorri Már Jónsson.
Rafn Markús Vilbergsson og Snorri Már Jónsson. Ljósmynd/umfn.is

Rafn Markús Vilbergsson þjálfari og Snorri Már Jónsson aðstoðarþjálfari hafa sagt upp samningi sínum sem þjálfarar meistaraflokks karla hjá Njarðvík í knattspyrnu eftir þrjú ár í starfi hjá félaginu. Þetta kemur fram á heimasíðu Njarðvíkur.

Undir þeirra stjórn hafnaði Njarðvík í neðsta sæti Inkasso-deildarinnar á síðustu leiktíð og spilar því í 2. deild á næsta tímabili.

Orðsending frá Rafni Markúsi Vilbergssyni

Sælir Njarðvíkingar,

„Við Snorri Már aðstoðarþjálfari tilkynntum stjórn knattspyrnudeildar Njarðvíkur í gær uppsögn á samningum okkar við félagið um áframhaldandi þjálfun. Eftir rúmlega þrjú ár sem þjálfari meistaraflokks Njarðvíkur skil ég sáttur og þakklátur fyrir að hafa verið hluti af þessari sterku liðsheild sem Njarðvíkurliðið hefur fyrst og fremst staðið fyrir. Hluti af hópi sem hefur náð besta árangri Njarðvíkur í deildarkeppni þegar við enduðum í 6. sæti í Inkasso-deildinni í fyrra eftir að sigra 2. deildina árið á undan og í sumar þegar við komust í átta liða úrslit í Mjólkurbikarnum.

Með auknum árangri hefur áhugi Njarðvíkinga aukist jafnt og þétt á að mæta á völlinn. Það var oft vel mætt í stúkuna en aldrei fleiri en þegar yfir 1000 manns fylltu völlinn í nágrannaslag gegn Keflavik í sumar. Félagið hefur verið heppið að geta byggt á stórum kjarna leikmanna sem hafa verið hjá félaginu í mörg ár og auk þess hafa margir flottir leikmenn og karakterar komið og myndað skemmtilegan hóp með sterk liðseinkenni. Þessum hópi þakka ég fyrir góðan tíma saman. Öllum þeim sem hafa unnið með mér í kringum liðið þakka ég fyrir og þá sérstaklega Snorra Má, Sævari Júll og Gunna Ástráðs sem hafa lagt á sig mikla vinnu í kringum liðið.

Mikilvægt er fyrir Njarðvík sem félag að halda rétt á spöðunum á næstu árum þar sem fjöldi iðkenda í félaginu hefur aukist á síðustu árum og þurfa allir sem vinna að félaginu að vera tilbúnir til að vinna markvisst með hag félagsins að leiðarljósi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert