Hrafnhildur úr Selfossi í FH

Hrafnhildur Hauksdóttir er orðin leikmaður FH.
Hrafnhildur Hauksdóttir er orðin leikmaður FH. Ljósmynd/FH-ingar

Hrafnhildur Hauksdóttir skrifaði í dag undir þriggja ára samning við knattspyrnudeild FH. Hafnarfjarðarliðið verður nýliði í efstu deild næsta sumar eftir eins árs veru í 1. deild. 

Undanfarin tvö keppnistímabil hefur Hrafnhildur spilað með Selfossi og varð m.a. bikarmeistari síðasta sumar. Þar áður var hún í Val og Selfossi. 

Hrafnhildur á að baki 90 leiki í efstu deild auk 15 leikja í bikarkeppni. Jafnframt hefur hún spilað fjóra leiki með A-landsliðinu auk fjölda leika með yngri landsliðum.

„Hrafnhildur er leikreyndur leikmaður sem styrkir FH-liðið fyrir komandi átök í Pepsí Max deildinni næsta sumar. Velkomin í FH Hrafnhildur,“ segir í tilkynningu frá FH í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert