Alfreð fór úr axlarlið

Alfreð Finnbogason fór úr axlarlið í Tyrklandi.
Alfreð Finnbogason fór úr axlarlið í Tyrklandi. mbl.is/Kristinn Magnússon

Alfreð Finnbogason fór meiddur af velli á 24. mín­útu í leik Íslands og Tyrk­lands í undan­keppni EM 2020 ytra í dag. Al­freð lenti illa eft­ir samstuð við Cagl­ar Söyuncu, leik­mann Leicester, með þeim afleiðingum að hann fór úr axlarlið. Vísir.is greindi frá. 

Leiknum lauk með markalausu jafntefli og eru Tyrkir komnir inn á EM, en Ísland þarf að fara í gegnum umspil til að vera með í lokakeppninni á næsta ári. 

Alfreð lék ekki með Íslandi í síðasta verkefni vegna meiðsla, en hann hefur verið mikið meiddur að undanförnu. Verður hann ekki með í lokaleik riðilsins gegn Moldóvu ytra á sunnudag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert