Þorvaldur dæmir í San Marínó

Þorvaldur Árnason dæmir í San Marínó.
Þorvaldur Árnason dæmir í San Marínó. Ljósmynd/Eva Björk Ægisdóttir

Þorvaldur Árnason dæmir leik San Marínó og Rússlands í undankeppni EM 2020. Leikurinn fer fram þriðjudaginn 19. nóvember í Serravalle í San Marínó.

Þorvaldur hefur þótt einn af allra fremstu dómurum Íslands síðustu ár og hefur því verið fenginn í nokkur verkefni erlendis. Ljóst er að um mikið tækifæri er að ræða dómarann og forvitnilegt verður að fylgjast með hvernig honum vegnar.  

Honum til aðstoðar verða þeir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Andri Vigfússon. Fjórði dómari er Ívar Orri Kristjánsson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert