Knattspyrnumaðurinn Valgeir Valgeirsson skrifaði í dag undir þriggja ára framlengingu á samningi sínum við HK. Valgeir var einn besti ungi leikmaður úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð.
Valgeir, sem er 17 ára, skoraði þrjú mörk í 20 deildarleikjum á síðustu leiktíð og var einn besti leikmaður HK-inga, þrátt fyrir ungan aldur.
Hann hefur vakið athygli félaga erlendis og æfði hann t.a.m. með AaB í Danmörku í byrjun árs. Valgeir hefur leikið 24 leiki með yngri landsliðum Íslands og skorað í þeim tvö mörk.