FH gerði jafntefli í Bandaríkjunum

Steven Lennon skoraði úr vítaspyrnu fyrir FH-inga í nótt.
Steven Lennon skoraði úr vítaspyrnu fyrir FH-inga í nótt. mbl.is/Kristinn Magnússon

Hjörtur Logi Valgarðsson og Steven Lennon voru á skotskónum fyrir FH þegar liðið gerði 2:2-jafntefli gegn D-deildarliði Sarasota í æfingaleik í knattspyrnu í Flórída í gær. Mark Hjartar kom úr opnum leik en Lennon skoraði úr vítaspyrnu.

FH hefur verið við æfingar í Bandaríkjunum undanfarna viku en gengi liðsins á undirbúningstímabilinu hefur ekki verið upp á marga fiska og hefur liðið aðeins unnið einn leik í vetur, gegn Þrótti Reykjavík í Lengjubikarnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert