Óvæntur Stjörnusigur á meisturunum

Stjarnan vann sterkan sigur á Val.
Stjarnan vann sterkan sigur á Val. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stjarnan vann í kvöld óvæntan 1:0-sigur á Íslandsmeisturum Vals í Lengjubikar kvenna í fótbolta á Samsung-vellinum í Garðabænum. 

Helga Guðrún Kristinsdóttir skoraði sigurmarkið á 64. mínútu, en Valskonur klikkuðu úr vítaspyrnu rétt fyrir leikhlé. 

Bæði lið eru með þrjú stig í riðlinum, en Valur hefur leikið þrjá leiki og Stjarnan tvo. Breiðablik og Fylkir hafa unnið báða leiki sína, en Þór/KA og Selfoss eru án stiga. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert