Andri Rafn klár í fyrsta leik

Andri Rafn Yeoman er leikjahæsti leikmaður Breiðabliks í efstu deild …
Andri Rafn Yeoman er leikjahæsti leikmaður Breiðabliks í efstu deild frá upphafi. mbl.is/Arnþór Birkisson

Andri Rafn Yeoman mun hefja tímabilið með knattspyrnuliði Breiðabliks í úrvalsdeild karla en þetta kom fram í hlaðvarpsþættinum Dr. Football í dag. Óvíst var um þátttöku hans í Íslandsmótinu í sumar en hann hefur stundað nám í verkfræði á Ítalíu í vetur.

Hann er hins vegar kominn til landsins og er nú í sóttkví. Andri Rafn er fæddur árið 1992 en hann er leikjahæsti leikmaður Breiðabliks í efstu deild frá upphafi. Þar á hann að baki 210 leiki í deildinni þar sem hann hefur skorað 14 mörk.

Andri átti upphaflega að koma til landsins í júlí en hann þurfti að snúa fyrr til landsins vegna kórónuveirufaraldsins sem nú geisar. Breiðablik mætir Gróttu í 1. umferð Íslandsmótsins en óvíst er hvenær mótið hefst vegna faraldursins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert