Spilar ekki með Fylki í sumar

Orri Hrafn Kjartansson samdi við Heerenveen fyrir tveimur árum.
Orri Hrafn Kjartansson samdi við Heerenveen fyrir tveimur árum.

Knattspyrnumaðurinn Orri Hrafn Kjart­ans­son spilar ekki með Fylki á Íslandsmótinu í sumar. Hann hefur æft með félaginu undanfarið en er samningsbundinn Heerenveen í Hollandi.

Miðjumaðurinn var seldur til hollenska liðsins fyrir tveimur árum og er uppalinn í Árbænum. Hann hefur verið á Íslandi undanfarið vegna kórónuveirunnar og höfðu Fylkismenn áhuga á að hafa hann í liðinu í sumar. Hann staðfesti það hins vegar við fótbolti.net í dag að hann muni snúa aftur til Hollands. Orri á 21 landsleik með yngri landsliðum Íslands og hefur hann skorað í þeim þrjú mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert